Hug-rekur
01.07.2006 18:33:45 / gunnsan

Enn og aftur..

Hef flutt bloggskrif mín á: http://www.123.is/safo36

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 22:28:27 / gunnsan

Yfirlýsing

Ekki mun fara fram nein skrif að einu né neinu tagi á næstunni.  Undirrituð hefur tekið sér frí frá bloggheimum um óákveðin tíma.

Hafið það gott og blessað.

Kveðja - G


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 15:40:50 / gunnsan

Áramótaheitin

Eitthvað hefur lítið farið fyrir viðkomandi á þessari bloggsíðu undanfarið.  Eftir svakalega flensu í upphafi árs hef ég verið að tjasla mér hægt og rólega saman við að gera nánast ekki neitt.

Skólinn er þó byrjaður núna af fullum krafti og er ég að reyna að temja mér aftur öguð vinnubrögð við nám og lestur.  Svakalega er maður samt fljótur að detta úr því og fara að gera ekki neitt.  En þar sem ég á akkúrat núna á þessari stundu að vera að lesa um hæfni ráðgjafa og hvernig ráðgjafi kemur til móts við ráðþega eftir mismunandi kenningum fer ég að blogga...... svona til að tefja lesturinn.  Meira svona athyglisbrestur við bækurnar. 

Samt hef ég svo sem ekkert til að blogga um..... annar athyglisbrestur eða kannski meira svona andleysi.  Fer eitthvað lítið fyrir gagnrýnni hugsuna... hvað þá skapandi hugsun og er meira eins og þessar fáu heilafrumur sem eftir eru séu í spa-meðferð í kollinum á mér í stað þess að vinna.  Eflaust eitthvað tilboð í gangi.

Ég er heldur ekki enn farin að komast í rútínu með ræktina.... eitt af mörgum áramótaheitum.  En ég er þó alltaf að hugsa um það og pakka niður í tösku leikfimisgallanum reglulega.  Tel að vera ágætis byrjun.  Svo er nú veðrið og færðin búin að vera svona og svona sem ég hef að fullystu tekist að samfæra mig um að sé góð afsökun.

Annað áramótaheit var að fara að borða hollari mat.  Það hefur að vísu gengið ágætlega.  Búin að prófa pínu nýtt í eldhúsinu en meira svona safnað mér saman skemmtilegum og spennandi hollum uppskriftum.  Keypti mér þó te í Heilsuhúsinu um daginn.  Afgreiðslustúlkan spurði mig hvernig te ég væri að leita að.... hhhmm.... ég sagði henni að mér vantaði eitthvað sem gæti komið til móts við allt kaffið sem ég drekk.  En færri kaffibollar á dag er líka enn eitt áramótaheitið.  Jú, hún benti mér á ansi huggulegt Engifer og Sítrónu te sem væri bragðsterkt og kæmi manni í gang.  Fínt.  Skellti mér á það og tók líka einn pakka af "Slim and Fit" tei...... 

Þegar ég kom svo heim hitaði ég mér vatn þar sem ég var spennt að prófa þessar nýjungar.  Meðan vatnið var að hitna skoðaði ég umbúðirnar utan af Engifer teinu og las þar að maður ætti að láta tepokann vera í um það bil tvær mínútur í vatninu.  Hafði nú aldrei haft tepoka svo lengi....sjálfssagt vegna óþolinmæði.  Nú, svo sá ég þarna á pakkningunni skemmtilegar jógaæfningar.  Svo að á meðan að tepokinn svamlaði í heitu vatninu í bollanum gerði ég nokkrar svona jógaæfingar og svei mér þá ef ég sá og heyrði ekki bara dálítið betur á eftir. 

Svo var tekinn fyrsti sopinn sem tókst að hrökkva svona líka ofan í mig.  Hvur djö....... Hver ansk...... Svona rótterkur skratti.  Ég hugsaði hvað í ósköpunum ég hef nú látið plata mig til að kaupa. Svona smakkaðist ekki engifer og sítróna!!! Skoðaði umbúðirnar aftur og sá þá standa með litlum stöfum:"Herb and Spice Blend"....Jahá..... hlaut að vera.  Afgreiðslukonan hafði jú sagt að teið væri bragðsterkt en ekki svona....  Ég lét þetta þó ekki stoppa mig og lét mig hafa það að drekka sullið... orðin rennsveitt á efrivörinni!!!!

En bækurnar lesa sig ekki sjálfar (skrítið)

Meira seinna


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 23:56:21 / gunnsan

...Nú árið er liðið í aldanna skaut ....

Og það er komið.....tvöþúsundogSex.  Manni finnst eins og það hafi verið í síðustu viku sem maður beið áramótanna tvöþúsund með blendnum tilfinningum.  Af því að maður var hræddur um að allt tölvukerfi mundi hrynja þegar öll núllin myndu birstast.  En enn erum við hér og tölvurnar og brauðristarnar hafa ekki enn gert árás.  Nokkuð gott.

Áramótin voru tekin í faðmi fjölskyldunnar, heima hjá foreldrunum.  Borin var á borð þessi heljar kalkúnn - á stærð við meðalhrút. Passað var uppá að þessu sinni að borða ekki alveg á sig gat líkt og á aðfangadagskvöld.  En þá kom húsmóðirin á bænum með trompið.  Jú, gamla hafði skellt í tvo deserta, takk fyrir.  Þannig að auðvitað var bumban verulega vel stór þegar staðið var upp frá borðum.

Af því að það er í tísku að tuða um skaupið fram í lok janúar þá má ég ekki vera minni manneskja en allir hinir tuðararnir.  En mér fannst það ansi saklaust.  Kannski ágætt að hvíla þjóðina á pólitíkinni og sleppa henni að mestu úr skaupinu en það voru nú þarna eitt og eitt atriði sem mér fannst nokkuð góð.  Ég verð að viðurkenna að ég fíla þessa stuttu skot þar sem einhver er að detta á rassinn eða labba á og svoleiðis og því fannst mér Laddi og Edda óborganleg sem hjón að versla í smáralindinni.  Gott uppbrot og skemmtilegur húmor.  Björgvin Frans sýndi og sannaði að hann er þrusu eftirherma og fannst mér hann ná tónlistamönnunum mjög vel en sérstaklega Guðmundi Steingrímssyni.  Það fannst mér alveg brilljant.

Það var hinsvegar nýmæli að sjá ekki útvarpsstjóra koma á eftir skaupi og flytja ávarpið góða.  Ávarpið sem er í raun playtakkinn á að "nú má fara út að skjóta.....núna!!!!.  Nei, nei.  Enda Palli bara alltaf að lesa fréttirnar og hefur ekki mátt vera að þessu.  Eða bara það skynsamur að fatta að það hlustar engin né horfir á svona rétt fyrir miðnætti.  Í staðin hefur Palli bara fundið einhverjar gamlar spólur niðri í kjallara og smellt á skjáinn og bætt við örlitlum endi.  Eitthvert uppfyllingarefni sem engin saknar að hafa ekki séð og þarf ekki að endursýna. 

Og nú er þrettándinn og menn í mínu nágreni reyna að skjóta jólin í burtu.  Sýnist nú flestar sprengjurnar ekki ná miklu háflugi.  Meira svona lágflug eða hreinlega bara út á hlið.  Enda veðurguðirnir með sitt partý og Ísland varð fyrir valinu þetta árið (svo og haustfagnaðurinn, árshátíðn og þorrablótið).

Læt þetta gott heita í bili.  Ég startaði árinu með góðri flensu og er því rétt að skríða saman.  En enn og aftur Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.


» 105 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 17:37:42 / gunnsan

Jólahelgin

Jæja. Þá er jólahelgin um garð gengin. Sú var nú aldeilis yndisleg. Aðfangadagur brast á með rólegheitum og dunduðum við okkur við að skreyta jólatréð, horfa á tívíið og keyra út jólagjafir og jólakort. Farið var í Safamýri um sex leitið og voru jólunum fagnað þar í faðmi mömmu og pabba - alltaf best. Loksins - loksins voru rjúpur á borðum eftir tveggja ára rjúpnasvelti. Og mikið bragðaðist fuglinn vel. Allir átu á sig gat og meira en það. Krakkarnir voru hjá okkur og ríkti gríðarleg spenna vegna pakkanna. Fengu þau að opna einn fyrir matinn. Spennan var svo mikil í guttanum að hann varla gat dregið inn andann og nötraði og skalf bara. Jóladagurinn var ekki síður þægilegur. Sofið lengi og drattast seint og um síðir á fætur. Krakkarnir fóru svo í jólaboð seinni partinn og lágum við hjúin á meðan í leti upp í sófa með osta og paté og lesið. Og svo koma annar í jólum sem leið líkt og jóladagur. Náði að fara út og fá mér góðan göngutúr meðan snjór lág yfir öllu svo að jólinn komu endanlega til mín en farið var að rigna á mig á leiðinni heim. Og allur er hann farinn blessaður. Fór í vinnu í morgun. Fjandi erfitt að vakna svona snemma. Rólegt að gera og var komin heim upp úr hádegi. Fer í vinnu aftur á morgun er svo komin í frí, híhí. Mæti ekki aftur fyrr en 3.jan. Komnar eru inn jólamyndir á myndir á vef hér til hliðar. Jæja, best að fara að horfa á Dýrin í Hálsaskógi sem Kertasníkir gaf guttanum. Held að við séum að fara horfa á þetta í 10 skiptið eða eitthvað!!

» 96 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 12:30:47 / gunnsan

Jólahjól

Þá er maður komin alveg í góðan jólagír.  Námsbækurnar verða fjarlægðar úr hillum og skúffum í dag og settar í geymslu fram til miðjan janúar.  En þá tekur við nám í "Álitamál í menntamálum" og svo "Ráðgjöf og samvinna".  Ég hef svo ætlað mér að taka einn stóran leskúrs í sumar um spekinginn John Dewey.  Vonandi næ ég því í gegn. 

Búin að setja upp svolítil jól hjá mér.  Hinn glæsilegi aðventukrans sem gerður var í Klúbbnum stendur stoltur inn í stofu og við Alex hömumst við að telja niður dagana fram að jólum.  Hann með jóladagatalinu og ég með Jóladagatalskertinu.

Smellt var í nokkur smákökudeig í gærkvöldi - með góðri aðstoð heimamanna.  Elísabet mældi og las uppskriftir og Alex stjórnaði hrærivélinni.  Á einum tímapunkti vantaði engifer og síróp og fékk sá stutti það mikilvæga verkefni að fara út í búð og versla það sem til þurfti.  Hann ætlaði einn.  En fékkst svo til þess að bjóða pabba sínum og systur með sér í smá göngutúr.  Sá stutti þrammaði ábyrgðarfullur í búðina - með miða frá stjúpu sinni í vasanum.  Tók hlutverk sitt alvarlega og leysti það vel af hendi.

Í dag á svo að fletja út piparkökudegið sem dormaði yfir nótt á svölunum og á að búa til hjörtu og stjörnur sem svo verða málaðar glæsilega af heimamönnum.

Góður dagur framundan.

speki dagsins:

Haddi:  Jæja, best að fara að gera eitthvað af viti!

Alex:  eins og að kúka í klósettið!!!


» 87 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 18:17:50 / gunnsan

Próflok

Jæja, er komin í jólafrí frá skólanum fram til miðjan janúar.  Yesssssss!!  Get núna farið að huga að blessuðum jólunum..... hef nú samt laumast aðeins til þess inn á milli verkefna og prófa.  En nú fer maður að munda kökukeflið og svona, rífa ryksuguna í gang og sleikja frímerki!!!!.... og ekki má gleyma.....bíða með öndina í hálsinum eftir einkunnum.  Ég er afskaplega góð í því að mála skrattann á vegginn þegar ég er að bíða eftir niðurstöðum...... verð örugglega búin að fá nokkur köst áður en einkunnirnar koma á vefinn....ef ég þekki mig rétt.

Annars er það helst í fréttum að það er lítið að frétta!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 09:34:57 / gunnsan

Sálfræði - páfræði

Jæja, þá er síðasti dagur fyrir próf og sit ég hér heima við yfir skruddunum.  Berst við að fara ekki að gera eitthvað annað.  Finnst allt í einu mjög nauðsynlegt að fara að baka....eða pússa skó...pússa glugga...strauja...stoppa í :$  eða klára jólasveinakrosssauminn!!  Einhvern vegin fer undirmeðvitundin á stað og vill hreinlega að ég geri eitthvað allt annað en að læra.  En á sama tíma herjar litla samviskan mín og til að friða samviskuna yfir því að vera að blogga en ekki að læra þá smelli ég hér inn nokkrum námspunktum:

= Gerð var rannsókn til að kanna áhrifavalda á þróun metnaðar hjá börnum.  Kom í ljós að feður sem voru ráðríkir, afskiptasamir og sýndu vandlætingu ýttu undir hjálparleysi hjá drengjum sínum þannig að þeir höfðu minni metnað.  En feður sem hvöttu syni sína áfram og lofuð árangurinn stuðluðu að meiri metnaði hjá drengjunum.

Einnig:  Væntingar um eigin getu virðist spá betur fyrir um árangur en greindarvísitala.

=  Önnur rannsókn sýnir að hjálparleysi barna er lærð hegðun.  Og að svo virðist vera sem stúlkur sýni frekar lært hjálparleysi en drengir

Bókin sem er til grundvallar í námskeiðinu er pjúra amerísk og því ekki hægt að taka mark á alveg öllu eeehhheemm en gaman að lesa hana.  Kanin til dæmis heldur því statt og stöðugt fram að leikskólasvöl barna sé þeim skaðleg og að ung börn eigi að vera heima hjá mæðrum sínum. Ein rannsókn er þó ansi góð:  Gerð var rannsókn á mikilvægi geðtengsla barna og voru teknir tveir hópar ungra barna.  Annar hópurinn ólst upp hjá þroskaheftum mæðrum en hinn hópurinn á stofnun.  Niðurstöður sýndu að börn þroskaheftra mæðra spjöruðu sig ágætlega á meðan börnin sem ólust upp á munnaðarleysingjahæli áttu í meiri félagslegum erfiðleikum.  Þannig að:  Rannsakandinn segir að það sé uppeldið sem skiptir máli en ekki uppalandinn.....  Soldið djúpt í árina tekið en jæja......

En best að fara halda áfram...... komin í kaflan um fjölbreyttar kennsluaðferðir og áhrif þeirra á nám og sjálfsmynd barna....

over and out


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 14:14:02 / gunnsan

Leikskólakennarar hafa fengið nóg!

Á síðu 2 í Fréttablaðinu í gær (föstudag) er grein frá því að Reykjavíkurborg hefur brugðið á nýstárlegri leið til að fá fólk til starfa á leikskólum.  Virðist sem móðursýkin hafi náð tökunum.  Nú er svo komið að fólk sem er á atvinnuleysisskrá fái gjaldfrjáls leikskólapláss fyrir börnin sín ef það kemur til starfa í leikskólunum.  Það er aldeilis!!  Auðvitað munar fólki um þann pening sem leikskólagjöldin eru en einnig er greint frá því að fólk á atvinnuleysisskrá greiðir um 16 þúsund krónur fyrir leikskólapláss.  Það er svipað verð og leikskólakennarar greiða fyrir dagvistun fyrir sín börn.

Er það "nýja starfsfólkið" sem á að fá umbunina í dag?  Hvað með kennarana sem hafa staðið vaktina undanfarna mánuði?  Við að halda uppi starfsemi deilda og oftar en ekki eru kannski einn kennari á hverri deild sem sér þá oftast um mestu ábyrgðina. 

Leiðbeinendur fengu umbun inn í sína samninga núna í vetur þegar manneklan var leikskólanna að drepa.  Enn situr kennarinn eftir með ekki neitt.

Þó er ég sjálf mjög heppin og þar sem ég starfa hefur ekki ríkt neitt neiðarástand.  Þar er góður og öflugur kennarahópur og eru fagmenntaðir í flestum stöðum og starfsemin því glimrandi.  Enn manni blæðir fyrir hönd starfsfélaga sinna annarsstaðar sem hafa þurft að ganga í gengum marga og mikla erfiðleika í haust.

Og útspil borgarstjóra er ekki að tryggja leikskólunum fagaðila í störf sem eru þau mikilvægustu í landinu.  Að tryggja uppeldi og menntun æskunnar.  Virðist sem skilaboðin séu "það er alveg saman hver það er...bara að það sé einhver"

Ég er ekki að segja að fólk á atvinnuleysisskrá sé verra fólk en annað en get nú rétt ímyndað mér að fólk fari ekki inn í leiðbenandastarf á leikskólanum þar sem þau laun eru vart miklu meiri en bæturnar. 

Finnst þetta hallærisleg lausn.  Og engin lausn í rauninni.  Hvað ætlar borgin að gera næsta haust þegar horft er til sömu vandræða og nú?

Og guð hjálpi sveitafélögunum þegar samningar leikskólakennara verða lausir í vor!!!!  Leikskólakennarar hafa fengið nóg! 

Lifi byltingin!!!


» 117 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 23:03:52 / gunnsan

hananú!

Ennþá lætur maður éta sig af auglýsingum!!  Þetta er nú einum of!!  Og ég ekki einu sinni í Landsbankanum. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 11:35:54 / gunnsan

og aðventan er komin

Nú eru ár og dagar síðan ég bloggaði síðast.  Mikið búið að vera á döfinni.  Skólinn hefur verið á fullu.  Verkefnaskil, fyrirlestur og próf.  Var nú ekki beint hress með þetta próf vegna þess að hluti af því var um efni sem ég tók próf í í grunndeild KHÍ – fannst nú óþarfi að þurfa að vera prófuð úr því aftur.  En jæja., allt í lagi.

 

Um miðjan nóvember tók ég þátt í stofnun samtaka áhugafólks um skólaþróun og var það virkilega spennandi og skemmtilegt.  Ég og stjórinn minn héldum fyrirlestur um breytingar sem við erum að vinna að í mínum skóla.  Gekk ágætlega.  Allur dagurinn var frábær, skemmtilegir fyrirlesarar og málstofur, skemmtilegar umræður á milli fyrirlesara og frábær hátíðarkvöldverður um kvöldið.  Ég hef fengið það hlutverk að vera gjaldkeri stjórnar samtakanna og er það í fyrsta skipti sem ég tek að mér það hlutverk.  Hef aldrei verið gjaldkeri.  Hálf stressuð hvað það varðar en vonandi hefst þetta allt saman J  

 

Þurfti að skreppa upp í Norðlingaskóla um daginn, í tengslum við þessa stjórn.  Hafði ekki komið þangað áður.  Fékk góðan túr um skólann.  Hitti minn kæra Félaga sem kennir þar.  Mikið óskaplega sem hann er heppinn.  Ég var frá mér numin af skólanum þ.e. af kennsluaðferðum og því einstaklingsmiðaða námi sem haft er þar að leiðarljósi.  Skólinn sjálfur er dálítið merkileg bygging.  Skúrar!!!  En fólki hefur tekist vel að gera rýmið aðlaðandi og skemmtilegt.  Fékk svo að vita það að það á eftir að byggja leikskóla á svæðinu....... og þá fór að hringja bjöllum í kollinum á mér.  Best að hafa augun opin fyrir því.

 

Árlega er svo laufabrauðsgerð hjá föðurfólkinu mínu fyrstu helgina í aðventu.  Það átti sér stað í gær.  Um þrjátíu manns var að skera út laufabrauð meðan mest var og var svo hangikjet og allt tilheyrandi með því um kvöldið.  Yndislegt að eiga þessa stund með stórfjölskyldunni og ná að hitta svona marga sem eru hér á suðurlandinu og spjalla.

 

Oft hef ég rætt um hvað ég teldi mig vera að verða gömul.....þroskuð......  Nú erum við vinkonurnar alveg að fara með það.  Það er kransagerðadagur í dag!  Já.  Nú ætlum við að stíga skrefið til fulls í að verða fullorðnar og sitja einn dag við skreytingagerð.  Því til að toppa allt er ég búin að kveikja á ofninum og er að skella inn einni eða tveimur plötum af smákökum í ofninn.  Best að hafa eitthvað góðmeti í allri þolinmæðisvinnunni sem mun eiga sér stað í dag.

 

Læt þetta gott heita í bili

 

Gunnur


» 121 hafa sagt sína skoðun

20.11.2005 20:11:41 / gunnsan

Gvöð sé lof!

Var inni á síðunni hennar Unnar Bjarkar og sá þetta snilldar próf til að gera á netinu, ákvað að herma:

<><>
</ /></><><>
</ /></>


Your Brain is 86.67% Female, 13.33% Male


You have the brain of a girly girl

Which isn't a bad thing at all

You're emphatetic, caring, and in tune with emotions.

You're a good friend and give great advice.





» 104 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 18:44:53 / gunnsan

Flug tímans

Stundum finnst mér ég ekki hafa neina stjórn.  Einhvern vegin flýgur tíminn áfram og lítið hægt að gera til að stoppa hann af.  Finnst nú eins og í gær að ég hafi setið í eldhúsglugganum hjá ömmu að reita vængina af fiskiflugum.  Liðin ansi mörg ár síðan það var.  Hef lært að hætta því...að kvelja fiskiflugur.

Nóvember ætlar að rjúka áfram líkt og aðrið mánuðir.  Núorðið finnst mér ég ekki skipuleggja vikuna heldur mánuðinn.  Fyrir mér er mánuður orðin að viku.  Stutt, skipulagt, aðþrengt.  Klukkustundirnar í sólahringnum hafa hreinlega fækkað eða allavega virðist hvert korter fljúga áfram líkt og mínúta. 

Helgin hefur liðið allt of hratt.  Ekki nærri öllu komið í verk samkvæmt skipulagi.  Kannski er það það.  Skipulagið.  Ætti kannski að hætta því.  Er nú stundum talin full skipulögð af öðrum fjölskyldumeðlimum.  Ætti kannski líka að hætta að ganga með úr.  Sleppa því að fylgjast með tímanum.  Hann kannski hægir á sér fyrir vikið.

Ekki eru fleiri þau orð.  Annað lítið í fréttum.


» 115 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 18:52:47 / gunnsan

Samkeppnin er hafin!!!

Jæja, Gíslinn fékk ekki fyrsta sætið hjá bláu höndinni.  Villi vann!!  Kannski hefði Gíslinn átt að auglýsa einhverstaðar annarstaðar enn á blog.central!!!!! Sérstaklega einhverstaðar annarstaðar en á blog.central/hugsandi.  ÆÆ.  ;)

Er komin gjörsamlega á haus í verkefnavinnu í skólanum.  Svona er það. Vinn best undir pressu.  Svo er ráðstefna um skólaþróun á öllum skólastigum eftir tvær vikur.  Einhvern vegin datt ég inn í það.  Þarf að fara að vinna. 

Er að verða töluvert stressuð.  Brjálað að gera í skólanum.  Nóg að gera í vinnunni og jólin á næsta horni.  Og ég ekki búin með jólakrosssaumsjólasveininn.  Ekki nóg með það.  Ég hef fengið samkeppni í jólakrosssaumaskapnum.  Tvær góðar búnar að fara og versla sér jólakrosssaumsdæmi og byrjaðar.  Erum þó sammála um að aldurinn.....þroskinn....er alveg að fara með okkur fyrst við erum komnar á kaf í krosssauminn.  En held að við toppum það þegar við förum að bera saman stykkin okkar......vona að við missum okkur ekki í því í jólaboðunum í ár....geymum það aðeins....þar til við verðum aðeins meira þroskaðar.

46 dagar til jóla....samkvæmt jólavef Júlla - nauðsynleg dægradvöl í skammdeginu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 14:03:01 / gunnsan

Seldi víst ömmu mína fyrir frítt blogg!

Það sem internetið bíður ekki uppá!!!  Ég áttaði mig á því að það er vegna auglýsinga sem blogg þetta er frítt.  Maður sættir sig við að hér blikki lífandis hellingur af auglýsingum sem maður kannski veltir því ekki svo mikið fyrir sér hvað maður er að bjóða félögum sínum og bloggvinum uppá.  En ég hef sem sagt gengið fram af sjálfri mér í dag.  Ég hef haldið úti síðu þessari með blikkandi auglýsingum sem ég hef ekki mikið spáð í.  Yfirleitt hefur þetta verið kvikmyndaauglýsingar og salgætisauglýsingar.  Auglýstar ódýrar utanlandsferðir og hvað er markverkt í fréttum.  En núna í dag - þegar ég opnaði síðu þessa.  Blasir við mér andlistsmynd af Gísla Marteini með Hallgrímskirkju í bakrunni og spurningin er þessi:"búin að kjósa?".  Kannski sjáið þið hana núna.  Veit ekki.  Þetta er fyrir neðan allar hellur.  Skítt með að hamra á vefi og bloggsíður þeirra sem styðja flokk blárrar handar.  Júróvísíon þulurinn hefur bloggsíðu MÍNA sem auglýsingaskilti!!

Engin hefur spurt mig hvort að ég vilji hafa auglýsingu um prófkjör Sjálfstæðisflokksins á bloggsíðu minni.  Ég get sjálfri mér um kennt.  Fyrst ég er ekki tilbúin að kaupa mér sér vefsíðu heldur treysta á frítt með auglýsingum hef ég selt skrattanum ömmu mína.

Ég bið lesendur mína afsökunnar á þessu.  Ég valdi frítt - með því misst valdið.

Er ekki á leiðinni á kjörstað!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3